01. október 2009 klukkan 21:16
Hjartastuðarinn er settur í gang og hann er notaður með öllu afli. Hún er að deyja, ef ekki dáin núna. Greyjið hefur verið lengi einmanna, án félagsskap og örugglega orðin mjög þunglynd. Hvernig er hægt að lifa svona?
Ennþá er verið að hamast á að ná henni til baka, það er þó ekki erfitt, því um leið og maður sýnir henni umhyggju tekur hún örvæntingarfull við þér, glöð í bragði. Hún lifði þetta af!
Já! Ég er að tala um síðuna mína, hún er búin að vera niðri í þónokkurn tíma án þess að ég veitti henni athygli og datt allt í einu í hug að sjá hvernig hún kemst í gang, hvort fólk sé nokkuð að lesa bloggin lengur.. er það ekki orðið svolítið gamalt?
Nýjasta dæmið núna er Facebook, og ég verð nú að viðurkenna. Ég var mjög treg í fyrstu og var sannfærð um að bráðum færi Facebook úr tísku, ég ætlaði ekki að hýsa eina síðuna enn!
En ég lét undan og núna get ég eytt tímunum saman á Facebook án þess að taka í raun eftir því.. En hvað er það sem dregur mann þangað og lætur mann hanga þar í marga klukkutíma? Þetta er mesti tímaþjófur sem ég hef kynnst og í hvert skipti sem ég er á Facebook reyni ég eins og ég get að vera bara í 5 mín.... Arg!
Ég veit að það eru fleirum sem finnst þetta.. hvað er þetta sem heldur okkur þarna?? Eru það allir þessir ómerkilegu statusar eða fáranlegu quizzin, kannski öll þessi applications sem við höfum samþykkt og erum að spila? Talandi um ómerkilega statusa, merkilegt nokk dæmi um það eru til dæmis; Farin að borða. Farin að sofa, góða nótt. Er í skólanum. Er að læra. Er veik/ur í dag. Mér leiðist. Er illt hérna og þarna. Ætlar að elda svona og svona. Er að vinna... blablabla.. Svo ég segi sjálf: Who Gives A F**k! Bara sorrí, en mér er alveg sama þótt þú sért í sálfræðitíma núna eða að fara að sofa.. þitt mál!
Eða þessi quiz.. vá! Nýjasta æðið núna er "Find the Date of the Day" þar sem þér er parað við frægann einstakling.. Eða "Ertu vinsæll eða lúði", "Hversu feit/ur ertu", "Ertu sæt"... Þetta er svo mikið bull! Svo eru sum quizzin alveg skemmtileg, ég viðurkenni það alveg, hef alveg tekið nokkur sjálf en ég mun aldrei leggjast svona lágt.. sorrí og fyrirgefiði þið sem stundið þetta.. mín skoðun..
Jæja nóg um þetta Facebook kvaldur. Ég hef það frekar gott og skítt til skiptis eins og gengur og gerist í mínu daglega lífi. Líka upptekin eins og vanalega, þá sérstaklega í tónlistarskólanum.. fjúkkedí.. Enda nota ég alltaf fimmtudaganna og legg mig í 2-3 klukktíma, þar sem ég er á spani þrjá fyrstu daga vikunnar. Haha, kreisí
Svo er það afmælið mitt.. 11 dagar í það. Við Aníta ætlum að slá saman og fara með sameiginlegann hóp á skauta og í Lasertag. Það verður vonandi fjör.
Ég ætla að gera tilraun hérna. Sjá hversu mikið þetta er lesið, nöldrið mitt. Ef ykkur líkar þar sem ég skrifa þá vil ég biðja ykkur góðfúslega að segja mér hvað ykkur finnst. Er það ekki sanngjarnt?
Þar til næst...
Guðbjörg Guðmundsdóttir
02. október 2008 klukkan 17:48
Þegar ég var að berjast við að vakna í morgun kom mamma inn, "Guðbjörg á ég að segja þér svolítið?" ég alveg "Hmprf já", "Það er snjór!" og ég tönglaðist upp í glugga og VÁ! Það var í alvöru snjór:)
Ég dreif mig fram, í lopapeysu og ullarsokka, ahh.. þvílíkt gott á meðan allir voru að frosna í skólanum, híhí..
Ég sé að hann er eitthvað að berjast við það að snjóa aðeins meira.. já hvað þetta er jólalegt, get ekki beðið eftir jólunum maður. Það er svo mikið að gera í skólanum að ég hef varla tíma fyrir neitt annað..jiminn. Mig hlakkar svo til að geta verið bara heima í náttfötunum að gera jólakortin, ég tók þau víst að mér hérna á heimilinu og þarf því að vera dugleg bæði í vetrarfríinu og jólafríinu.. Æji það verður fínt.
Blessuð jólin, að þau láti bíða eftir sér..
Segir ein sem er ekki einu sinni búin að eiga afmæli.. það styttist samt óðum í það, og já bílprófið líka:)
Jæja, ég er í miðjum glósuleiðangri þannig ég er bara farin aftur, fariði nú að lesa bloggin mín elskurnar mínar;*
Guðbjörg Guðmundsdóttir
13. september 2008 klukkan 18:17
Tók smá sumarfrí, eins og kannski má kalla það. Er komin aftur:) Veit samt ekkert hversu dugleg ég verð hér í vetur, það er annað mál..
Ég ætla að tileinka þessari síðu föndurvinnu minni, hér getiði skoðað það sem ég er að gera. Ég bý til kort og sel þau hér, bara orðið bisness hérna, haha:D
Þeir sem hafa áhuga þá skrautskrifa ég líka og hef skrautskrifað í kort og gestabækur, nú, ef kortin sem eru hér til sýnis henta ekki alveg get ég gert nýtt að þínum þörfum, ekkert mál:)
Sniðugasta leiðin til að taka frá kort, skrautskrift eða hvað sem er, er að senda mér tölvupóst á gudbjorggudm(hjá)visir.is, ekki skrifa það í gestabókina, ég kíki aldrei þangað:)
Öll kortin mín eru undir linknum "Myndir" og er þér velkomið að skoða:)
Þar til næst,
Guðbjörg bissness-man;)
Guðbjörg Guðmundsdóttir
28. febrúar 2008 klukkan 20:53
Hæhæ, langt síðan ég hef skrifað hér, búið að vera brjálað að gera og svo er Axel að fermast núna um helgina;)
En ég er semsagt með smá breytingu, þar sem ég hef ákveðið að selja kortin mín á netinu, þannig að í myndaalbúminu á næstunni verða myndir af kortum sem ég hef gert, seld eða óseld og þá getur fólk komið með óskir fyrir kort.
Ég er ekki brjáluð! Ég er búin að fá að heyra það oft frá fólki að ég ætti að selja kortin mín, ég ætla að láta á reyna, en ég setti öll kortin í "Myndir", endilega bara hafið samband;) (haha voða flott:D)
En.. þangað til næst..
Sjáumst!
Guðbjörg Guðmundsdóttir
02. janúar 2008 klukkan 14:51
Ég vil byrja árið á því að óska ykkur gleðilegrar hátíðar og farsældar á þessu nýja ári. Ég er ósammála Völuspá fyrir svartsýnis ár, ég hef það á tilfinningunni að þetta ár verði æðislegt og að baki er liðið eitt magnaðasta ár lífs míns, förum aðeins í gegnum það..
Janúar:
-Eyddi áramótunum mínum með bestu vinkonu í öllum heiminum
-Nýársbrennan, ég er í gæslu og í skátunum og við kveðjum jólin með stæl
-Nýtt ár hefst, samrændu prófin, FS og margt fleira, finn fyrir tilbreytingu í loftinu og veit að þetta ár er stórt ár í lífi mínu
-10. bekkur byrjar aftur eftir jólafrí, og nú í samrænda prófs undirbúningi
Febrúar:
-Árið er ennþá nýtt og ferskt
-Maður er alveg komin í skólafílinginn á ný og tekst á við ýmislegt
-Fæ tilkynningu um að ég eigi að taka grunnprófið í víóluleiknum
Mars:
-Veikist í hálfan mánuð og dregst aftur úr í skólanum
-Tek grunnprófið fárveik
-Rétt næ á árshátíðina
Apríl:
-Fer að vinna í fermingaskeytasölu hjá skátafélaginu
-Nína frænka fermist
-Samrændu í byrjun næsta mánuðs, æfingarnar fara á fullt og sömuleiðis tilhlökkun og stress.
-Páskafríið fer allt í undirbúning, ég náði að skrifa tvær fullar stílabækur af glósum úr náttúrufræði og tel það afrek:)
-Strákur að nafni Ásmundur byrjar að hringja og tala við mig, við verðum góðir vinir..:)
Maí:
-Samrændu prófin byrja 2. maí, til allrar hamingju náði ég að æfa allt og er fullkomlega örugg með útkommuna.
-Þemadagar byrja í skólanum, ömurleg vika fyrir 15 ára barn, þar sem allt var ætlað yngstu krökkunum, við látin hjálpa með það, æj, það var svosem allt í lagi.
-Skólaferðalagið hefst, ég, Gússí, Maggi og Elsa fórum ekki, en fengum að aðstoða kennslu hjá fyrsta bekk í staðinn.
Júní:
-Skólaslit, ég er valin fyrirmyndarnemandi og fæ viðurkenningu fyrir bestu einkunina í skrautskrift, fæ út úr samrændu og er mjög sátt með einkaninar mínar:)
-Skólaslit í Tónlistarskólanum, ég náði grunnprófinu og öllu tilheyrandi, fékk rós:)
-Ylfingamót helgina eftir, ég bíð Ása að koma og vinna. Hlutirnir gerast og nokkrum dögum seinna erum við saman:)
-Byrja að vinna í kofabyggðinni, þangað fer ég ekki aftur en fékk samt ágætis sólarfreknur.
-Mánaðarmótin júní-júlí fór ég á Laugarveginn, erfiði og stolt þar á ferð, fallegasta svæði sem ég ferðaðist um þetta árið.
Júlí:
-Kem af Laugarveginum og beint í Jamboree undirbúning, aftur er mikil tilhlökkun og spenningur
-Ási eignast hund, Trygg, og þjálfar hann sem björgunarsveitahund
-Afmælismót skátanna
-Fór á landsmót unglingadeila björgunarsveitanna á Gufuskálum, var í 5 daga og það var mjög gaman
-Fjórum dögum eftir að ég kem heim frá Gufuskálum fer ég á Jamboree í Englandi
Ágúst:
-Kem heim frá Englandi 12. ágúst, sama dga fer ég í afmælispartý til Gússí
-Ási á afmæli 15. ágúst
-Byrja í FS
-Ljósanótt
-Fæ vinnu í Rafvörumarkaðinum
September:
-Skólinn fer á fullt, mér gengur rosalega vel í öllu
-Hjálpa mömmu með skátaskráningunna og skátarnir og tónlistarskólinn fara af stað
Október:
-Tryggur, hundurinn hans Ása, lendir fyrir bíl og þrífótbrotnar, er á sjúkrahúsi í dálítin tíma en lést svo af völdum hjartaráfalls 11. október. Sama dag fórum við í bæinn og Ási fékk nýjan hund, Tönju.
-Daginn eftir, 12. október, varð ég 16 ára
-Félagsútilega 12-14 október, ég veiktist skyndilega í þeirri útilegu
-13. október vorum við Ási búin að vera saman í hálft ár, Tryggur hefði orðið 1 árs.
-Þegar ég kem heim úr útilegunni fer ég upp á spítala og greinist með einkirningssótt, missti þar af leiðandi af skóla í 3 vikur og allt þol fuðraði upp
- Þegar ég kem aftur í skólann byrjar prófundirbúningur
- Byrjaði í ökukennslu
Nóvember:
-Prófin fara alveg að skellast á okkur
-Jólin eru á næsta leiti
-Fæ vinnu hjá Tónlistaskólanum
Desember:
-Prófin byrja 2., búin 10.
-Jólafrí, byrja að föndra jólakort handa öllum og skreyta
-Launuð hjá kirkjunni fyrir að spila á víóluna í messum
-Jólin, fékk ýmislegt fínt í jólagjöf og er mjög sátt:)
-Gamlárskvöld tekið með stæl, Ási var hjá okkur heima hjá Brynju frænku og mikið sprengt og gaman:)
-Gleðilegt 2008:)!!
Jám! Þetta var svona annáll 2007.. hehe, very næs:D
En ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra, en ég óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar að þessu nýja ári;)
Guðbjörg Guðmundsdóttir
09. desember 2007 klukkan 13:15
Jólin, jólin.. já það er sko ekki langt í þau! Ég get ekki beðið eftir því að komast í jólafrí,, eða semsagt á morgun..:D
Já ég er alveg að verða búin í prófunum, mér hefur gengið bara vel miðað við það hvað ég missti mikið úr.. ég held að ég nái allavega eitthverju ;) haha.. á morgun er svo stærðfræðiprófið - allra erfiðasta prófið..
Sko, ég er ekki löt! ég er að bíða eftir Ása, hann er í sturtu, til að við getum farið að æfa okkur undir prófið.. já og ég fagna því að mamma leyfði mér að gista hjá honum síðustu nótt :)
Æj ég er kannski smá löt, ennþá í náttfötunum,, æji maður! Það er sunnudagur!
Svo eftir prófið á morgun byrjar sko jólaundirbúningurinn, ég og Ási ætlum að skrifa jólakort, og ég og Sandra ætlum að baka piparkökur, svo er ýmislegt í gangi :) ég er svo fegin að vera búin á morgun, Ási er ekki búin fyrr en á fimmtudaginn :( ástin.. en það er allt í lagi :)
Skoh.. þarna kom Ási úr sturtu :D hehe.. ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra, þar sem við þurfum að fara að undirbúa okkur undir stærðfræðiprófið:)
Sjáumst!
Guðbjörg Guðmundsdóttir
08. nóvember 2007 klukkan 23:01
Back on track!
Ójá.. ég er so back on track.. ég er komin aftur í skólann eftir 3ja vikna frí, ég get sko aldeilis sagt að mér var farið að leiðast nett mikið..:)
Mér er allavega farið að batna vel og það er fínt.. er samt enn viðkvæm sem postulín, má ekki gera neitt..oh jæja, það verður að hafa það.. ég hef um annað að snúast!
Ég er alltof langt eftir í skólanum..eða svona.. já hjá þessum kennurum sem eru alltof góðir með sig til að gefa manni eitthverjar upplýsingar.. sjálfselsku fílf! Allir að druna á manni prófum, nýskriðin úr vetrardvalanum, og maður veit ekkert úr hverju er verið að prófa.. hvað er eiginlega að? Ég þarf að komast í systemið aftur.. oh bjánar!
En hvað um það, mér hefur svosem gengið vel.. haha, ég má alveg segja svo..
Er öll að koma til.. fer aftur í blóðprufu í næstu viku..jájá.. ég er orðin góð skoh..;) segjum það bara!
Ég er orðin alltof þreytt, sem fylgir þessu náttúrulega, en ég er að bíða eftir elskunni minni, það sem það er eitthversskonar æfingarútkall... HAHA, hann var akkurat að koma :D Þessi elska.. hann er bókstaflega búin að búa hjá mér síðustu viku.. algjört krútt!
Æj, ég er orðin þreytt.. við ætlum upp að lúlla..
Góða nótt!
Guðbjörg Guðmundsdóttir
30. október 2007 klukkan 23:25
Já, hér er ég.. Ligg hér upp í rúmi í eitthverjum keng í myrkrinu, Ási nývaknaður við hliðiná mér að söngla Nickleback, hehe.. that's life.
Ég er ennþá heima, þriðja vikan sem ég kem ekki í skólann eða geri eitt né neitt. Byrjaði að læra í gær.. gerði 3 200 orða ritgerðir í ensku og 3 ritanir í dönsku. Mikið rosalega tók það á að læra.. já kallið mig aumingja! Það er erfitt að fara upp stigann :/ allt er erfitt..!
Ég sakna þolið sem ég var komin með, ég gaf mig alla fram, ég hef verið mjög dugleg síðustu mánuði að ná upp þoli, meira að segja hætt á asmalyfinu, eða svona, ákvað sjálf að hætta.. og þá þetta.. og ég þarf að byrja á byrjunarreit! arg..
Ég fæ úr þriðju blóðprufunni á fimmtudaginn.. vonandi góðar fréttir því mér líður eins og ég sé í stofufangelsi... ég veit bara ekki hvað ég gerði rangt..
Missti af snjónum sem kom, vá, hvað hann var fallegur og ég fékk alveg ótrúlega löngun til jólanna og allt sem þeim fylgir, mér langaði svo út í snjóinn... en hvað, núna þegar mér er að batna þá er hann farin..:( Ég er rétt að vona að hann komi fljótlega aftur!
Ég sakna skólans alveg hræðilega mikið.. ég er að reyna að halda kontakt við kennaranna en þeir virðast ekki allir vilja hjálpa mér.. ég hef aðeins fengið upplýsingar frá 3 kennurum af 6..leim!
Æj hvað er ég að bulla.. mér er þó að batna.. ég finn ekki lengur til í maganum og ég finn fyrir svengd en ekki flökurleika, það koma þó tímar sem ég fæ stig eða krampa.. en það er víst bara eftirköst..
Ég vona svo innilega að þetta sé allt á niðurleið, því nú fer bráðum prófundirbúningur af stað og ég á eftir að gera alveg heilan helling.. bara líkaminn ræður ekki við það að gera þetta allt í einu.. þið áttuð bara að sjá mig í gær, þegar ég var búin að læra og læra.. ég lagðist upp í rúm, alveg búin, og ég skalf.. ekki úr kulda, heldur ofreynslu, og mér leið svo illa.. vá.. ég mæli ekki með þessu!
Jæja, ætli maður þurfi ekki að fara að hætta að væla núna, fara að hvíla sig..
það er víst eina alvöru bataleiðin..
Ég kveð þá.. með batnandi hug til að komast í skólann í næstu viku..
Bonsoir!
Guðbjörg Guðmundsdóttir
19. október 2007 klukkan 10:52
Já gott fólk, góðan dag..=)
Afsakið þetta ástand, það er búið að vera MIKIÐ að gera og mikið í gangi hjá okkur þannig það er kannski ekki alltaf rétti tíminn til að blogga..
Þetta byrjaði samt aðallega þannig að eitt mánudagskvöld kemur Ási á rekkaskátafund haltrandi, ég skil ekkert í því, hann er ekki vanur að haltra, þá hafði hann meiðst á æfinu, seinna þetta kvöld lá hann í kvölum þannig við fórum á vaktina, eins og allt bullið er þar alltaf hreint, þá fór hann í bæinn daginn eftir og var með rifinn vöðva, gat illa gengið og mátti ekkert gera..
Tryggur var sendur á sjúkrahús í bænum rúmlega viku seinna, það var keyrt á greyið, þrí fótbrotinn minnir mig, en endaði allt með að hann var jarðaður nálagt Kjalarnesinu =''( Blessuð sé minning hans elsku krútt..
Mikil sorg þar sem hann átti 2 daga í að verða 1 árs, eða 13. október, sama dag og við Ási vorum 4gra mánaða og daginn eftir afmælið mitt. Sama dag og slysið var fórum við í bæinn og Ási fékk nýjann hund, tík, sem er voða svipuð Trygg nema oggu pínu lítil og algjör krútt=)
Þessa helgi fórum við í félagsútilegu með tæplega 100 krökkum! Ég veiktist á föstudagskvöldinu með hita, litla matarlyst og bjúg undir augunum og var þannig alla helgina.
Á mánudaginn þegar ég kom heim fór ég til læknis.. vorum þar í 2 tíma! En ástæðan fyrir því er að ég var skoðuð og send í blóðprufu og það að leiðandi DRULLU marin þar sem kjellann stakk mig!! Meina það.. er með 3 cm stórt mar og 2 cm þykkt... Út úr blóðprufunni kom annars vegar að ég væri með Einkirningssótt, eða kossasótt, sem lýsir sér þannig að lifrin og miltað stækka. Má ekki reyna á mig, ofkeyra eða hlaupa, né fara í leikfimi eða eitthvað slíkt, því þá er hætta á að skaða lifrina eða miltað. Sýnilegu einkennin koma fram eftir 30 - 50 daga, þannig þetta hefur verið í mér í dáldin tíma og ég get verið í allt að hálft ár að ná mér!
Þetta er ótrúlega kvalarfullt og það er ekki lengur til neitt sem kallast svengdartilfinning því í hvert skipti sem ég verð svöng finn ég fyrir flökurleika. Vont að anda, hiksta, hnerra, hósta, alltaf með brjóstsviða og þarf að sofa í ákveðnum stellingum. Það er talið að maður verði slappur og þreyttur í nokkrar vikur og já, það er alveg rétt!
Ég reikna samt út að ég komi í skólann á þriðjudaginn.. kjellan leggst sko ekkert í langan dvala;)
Til allrar hamingju er ofsa gott að eiga eitthvern að og Ási kíkir stundum á mig, það er rosa gott að hafa hann svona hjá mér =) =*
Ég fór í fyrsta bóklega ökutímann á mánudaginn, svo fór ég á þriðjudaginn og í gær og er þar að leiðandi búin með Ö1, á að fara í verklegann ökutíma í dag en ég veit ekki hvort ég treysti mér, það kemur bara í ljós=)
Æjj ég ætla að segja þetta gott og hendast í sturtu og laga til fyrir fjölskylduafmælið á sunnudaginn. Ó MÆ! Held að ég sé komin með guluna... já læknirinn sagði að það gæti komið fyrir =S=S Hehehe...
Guðbjörg Guðmundsdóttir
29. september 2007 klukkan 13:18
Já góðan dag fólk!
Það er óhætt að segja að ég hafi verið upptekin, ekki búin að komast almennilega í tölvuna síðan skólinn byrjaði.. í alvöru, allt að gerast..
Er reyndar bara í vinnunni núna, lítið að gera og ákvað að nota tímann, fólk er víst ekki ánægt með að ég bloggi ekki og ástæðan fyrir því er einföld.. það er svo margt sem hefur forgang fyrir tölvuna og ég vildi óska að mér mundi leiðast eitthvern daginn!
Ég vona bara að þið gefið mér þolinmæði.. þið sem eruð ekki sátt við mig, annað særir.
Prófin eru komin á fullt núna.. mér hefur gengið þokkalega.. samt best í stærðfræði..suprising..tók mig á. Skólinn tekur mikinn tíma frá mér, er bæði lengi í skólanum og alveg bilað mikið að læra heima.
Allt að gerast allsstaðar..hehe.. veit ekkert hvað ég get sagt. Já, DJ Páll Óskar var að spila á miðvikudaginn sl. það var massíft, vorum samt bara 5 vinirnir; ég, Ási, Gússí, Maggi og Jóhann, já þetta var ekki vel mætt ball en gott samt sem áður, fór að sofa kl. hálf 4 og vaknaði "fersk" daginn eftir, ballið var í Sandgerði, var búið kl. 1 og rútan kom ekki strax og við Ási vorum komin heim kl. 2, fengum okkur te og ristað brauð og fórum svo að sofa.. og ég er ekki að djóka, það voru svona 1 / 12 edrú þarna.. haha bara fyndið..:)
En já, ég hef ekki meira að segja nema, fyrirgefiði að ég skuli ekki getað bloggað neitt.. mér líður hræðilega! ..ég þarf að skipuleggja mig betur og halda í það að blogga allavega hvern laugardag, þegar ég er í vinnunni;)
Guðbjörg Guðmundsdóttir