Innskráningar kubbur

Auglýsing

Könnun

Ríkistjórnin er í einu orđi...

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Guđbjörg Guđmundsdóttir
  • Stađur: Keflavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Bláa Lóniđ og Skátafélagiđ Heiđabúar
  • Hjúskaparstađa: Frátekin
  • Um mig: Ég er bara lítil og saklaus Keflavíkurmćr sem skríđur í 18 ára aldurinn. Ţessi síđa er bara taut frá mér, ég veit ekki hvort ţađ er eitthvađ ađ marka ţađ eđa ekki. Njóttu =)
  • Annađ: Myndin hérna er ársgömul ;)

17 ára:)

Leikur dagsins

Cause you had a bad day.. or a bad weeks..

19. október 2007 klukkan 10:52

Já gott fólk, góðan dag..=)

Afsakið þetta ástand, það er búið að vera MIKIÐ að gera og mikið í gangi hjá okkur þannig það er kannski ekki alltaf rétti tíminn til að blogga..

Þetta byrjaði samt aðallega þannig að eitt mánudagskvöld kemur Ási á rekkaskátafund haltrandi, ég skil ekkert í því, hann er ekki vanur að haltra, þá hafði hann meiðst á æfinu, seinna þetta kvöld lá hann í kvölum þannig við fórum á vaktina, eins og allt bullið er þar alltaf hreint, þá fór hann í bæinn daginn eftir og var með rifinn vöðva, gat illa gengið og mátti ekkert gera..

Tryggur var sendur á sjúkrahús í bænum rúmlega viku seinna,  það var keyrt á greyið, þrí fótbrotinn minnir mig, en endaði allt með að hann var jarðaður nálagt Kjalarnesinu =''(  Blessuð sé minning hans elsku krútt..
Mikil sorg þar sem hann átti 2 daga í að verða 1 árs, eða 13. október, sama dag og við Ási vorum 4gra mánaða og daginn eftir afmælið mitt. Sama dag og slysið var fórum við í bæinn og Ási fékk nýjann hund, tík, sem er voða svipuð Trygg nema oggu pínu lítil og algjör krútt=)

Þessa helgi fórum við í félagsútilegu með tæplega 100 krökkum! Ég veiktist á föstudagskvöldinu með hita, litla matarlyst og bjúg undir augunum og var þannig alla helgina.
Á mánudaginn þegar ég kom heim fór ég til læknis.. vorum þar í 2 tíma! En ástæðan fyrir því er að ég var skoðuð og send í blóðprufu og það að leiðandi DRULLU marin þar sem kjellann stakk mig!! Meina það.. er með 3 cm stórt mar og 2 cm þykkt... Út úr blóðprufunni kom annars vegar að ég væri með Einkirningssótt, eða kossasótt, sem lýsir sér þannig að lifrin og miltað stækka. Má ekki reyna á mig, ofkeyra eða hlaupa, né fara í leikfimi eða eitthvað slíkt, því þá er hætta á að skaða lifrina eða miltað. Sýnilegu einkennin koma fram eftir 30 - 50 daga, þannig þetta hefur verið í mér í dáldin tíma og ég get verið í allt að hálft ár að ná mér!
Þetta er ótrúlega kvalarfullt og það er ekki lengur til neitt sem kallast svengdartilfinning því í hvert skipti sem ég verð svöng finn ég fyrir flökurleika. Vont að anda, hiksta, hnerra, hósta, alltaf með brjóstsviða og þarf að sofa í ákveðnum stellingum. Það er talið að maður verði slappur og þreyttur í nokkrar vikur og já, það er alveg rétt!
Ég reikna samt út að ég komi í skólann á þriðjudaginn.. kjellan leggst sko ekkert í langan dvala;)
Til allrar hamingju er ofsa gott að eiga eitthvern að og Ási kíkir stundum á mig, það er rosa gott að hafa hann svona hjá mér =) =*

Ég fór í fyrsta bóklega ökutímann á mánudaginn, svo fór ég á þriðjudaginn og í gær og er þar að leiðandi búin með Ö1, á að fara í verklegann ökutíma í dag en ég veit ekki hvort ég treysti mér, það kemur bara í ljós=)

Æjj ég ætla að segja þetta gott og hendast í sturtu og laga til fyrir fjölskylduafmælið á sunnudaginn. Ó MÆ! Held að ég sé komin með guluna... já læknirinn sagði að það gæti komið fyrir =S=S Hehehe...

Guđbjörg Guđmundsdóttir
Flott blogg!
Láttu þér batna og þegar þú ert bötnuð veruru að koma á fund, we really miss you!;*
-Þk
21. október 2007 klukkan 18:08
anja ;*
 
flott blogg (:
ooog.. láttu þér batna eins fljótt og hægt er elsku krússlan mín ! ;* i miss you ;(
24. október 2007 klukkan 20:48

Skrifa athugasemd