12. júní 2007 klukkan 11:28
Já, það er óhætt að segja að sólin skíni á mann þessa daganna. Það er nú komið sumar;)
Ég hef haft það gott, mjög gott, alveg hreint frábært í sumarfríinu sem er rétt að byrja.. en þó, það byrjaði á fimmtudaginn, skólaslitin, fór í skólann pínu fín og með violuna mína, byrjaði slitin á að spila, gekk vel, síðan var haldið smá ávarp og svo var ég, ásamt 3 öðrum, kölluð upp, og okkur veitt viðurkenningu og áletraðan penna; Fyrirmyndarnemandi Njarðvíkurskóla, mjög flott það.
Svo kom annað ávarp og eftir það kom einn kennari á fæti öðrum og í hverju einasta fagi var veitt viðurkenningu fyrir hæðstu einkunn í því fagi, ég var kölluð upp með 10 í skrautskrift og fékk enskt skrautpennasett með nokkrum blekstautum og nokkrum gerðum af pennum að gjöf, mjög flott sú gjöf.
Síðan var hver og einn kallaður upp til að fá einkaninnar sínar, og já.. ég er sko ánægð með mínar..en þær voru eftirfarandi;
Íslenska 7,5
Stærðfræði 8,0
Danska 6,0
Enska 9,0
Náttúrufræði 9,0
Náttúrufræði 2 10,0 (Aukavalgrein sem ég tók í náttúrufræði)
Samfélagsfræði 7,0
Lífsleikni 9,0
Skrautskrift 10.0
Nýsköpun 9,5
Ökunám 8,5
Íþróttir 8,5
Starfskynning Staðist
Skólasókn 9,8
Pabbi reiknaði meðaleinkunnina og hún var 7,45..held ég..
Allavega var ég mjög ánægð með þetta, og eftir slitin var boðið upp á kökur og alles, þá komu til mín þónokkrir kennarar, skólastjórinn og aðstoðar og deilarstjórinn og óskuðu mér til hamingju og báðu mig að vera lengur.. hahaha einmitt að ég verði lengur;)
Föstudaginn eftir lá leið mín á Úlfljótsvatn og á ylfingamót, ég fór með Árna, Aldísi, Ása, Svani, Svövu og Írisi, á tveim bílum af sjálfsögðu, vorum komin frekar seint en það varð smá kerruvesen, skildum bara eldhúsbekkina eftir heima;) Það reddaðist, en farið var frekar seint að sofa það kvöld;) En við starfsmennirnir plöntuðum okkur í sama tjald..í tveim svefnskálum;)
Daginn eftir var svo ræs, dagskrá og allt það, fyrir hádeigi voru ég og Aldís með flokk og dagskrá, og eftir hádegi vorum við eldhúsmellur;) já, að útbúa mat og annað..
Svo kom kvöldvaka og kakó og svo bara kyrrð, en hún var aftur mjög mjög seint hjá mér;) hahaha..svona er þetta að þurfa að sussa á ylfinga sem neita að fara að sofa, vera starfmaður líka og að dotta öðru hvoru inn í eldhústjaldi en þurfti alltaf að hlaupa út að sussa á krakkanna, svo loksins þegar ég fékk að fara að sofa var ég eini starfsmaðurinn í tjaldbúðinni (allir voru úti í svona starfsmannadagskrá) og erfitt að sofna, ískalt en alltof þreytt.. haha, sofnaði samt þegar liðið kom inní tjald líka, það verður alltaf svo kalt ef maður er einn en þegar 2 eru komnir til viðbótar hlýnar strax - tjaldalögmál!!
Daginn eftir var ég svo drulluþreytt að ég neitaði alveg að fara framúr.. varð samt.. það tókst að lokum;) Með mikinn hausverk og bakverki, eftir að hafa ekki sofið með kodda né á dýnunni minni..hahaha. Svo var dagskrá fyrir hádegi og eftir hádegi var farið að pakka niður og farið.. á leiðinni heim sá ég að ég hafði fengið smá lit og varð orðin útitekin:)
Það er óhætt að segja að sumarið mitt hafi byrjað vel;)
Jæja, ætla að gera eitthvað að viti núna, annað en að vera í tölvunni, segiði ykkar skoðun!;),
sjáumst;)