Innskráningar kubbur

Auglýsing

Könnun

Ríkistjórnin er í einu orđi...

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Guđbjörg Guđmundsdóttir
  • Stađur: Keflavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Bláa Lóniđ og Skátafélagiđ Heiđabúar
  • Hjúskaparstađa: Frátekin
  • Um mig: Ég er bara lítil og saklaus Keflavíkurmćr sem skríđur í 18 ára aldurinn. Ţessi síđa er bara taut frá mér, ég veit ekki hvort ţađ er eitthvađ ađ marka ţađ eđa ekki. Njóttu =)
  • Annađ: Myndin hérna er ársgömul ;)

17 ára:)

Leikur dagsins

Bloggiđ endurvakiđ

01. október 2009 klukkan 21:16

Hjartastuðarinn er settur í gang og hann er notaður með öllu afli. Hún er að deyja, ef ekki dáin núna. Greyjið hefur verið lengi einmanna, án félagsskap og örugglega orðin mjög þunglynd. Hvernig er hægt að lifa svona?
Ennþá er verið að hamast á að ná henni til baka, það er þó ekki erfitt, því um leið og maður sýnir henni umhyggju tekur hún örvæntingarfull við þér, glöð í bragði. Hún lifði þetta af!
Já! Ég er að tala um síðuna mína, hún er búin að vera niðri í þónokkurn tíma án þess að ég veitti henni athygli og datt allt í einu í hug að sjá hvernig hún kemst í gang, hvort fólk sé nokkuð að lesa bloggin lengur.. er það ekki orðið svolítið gamalt?
Nýjasta dæmið núna er Facebook, og ég verð nú að viðurkenna. Ég var mjög treg í fyrstu og var sannfærð um að bráðum færi Facebook úr tísku, ég ætlaði ekki að hýsa eina síðuna enn!
En ég lét undan og núna get ég eytt tímunum saman á Facebook án þess að taka í raun eftir því.. En hvað er það sem dregur mann þangað og lætur mann hanga þar í marga klukkutíma? Þetta er mesti tímaþjófur sem ég hef kynnst og í hvert skipti sem ég er á Facebook reyni ég eins og ég get að vera bara í 5 mín.... Arg!
Ég veit að það eru fleirum sem finnst þetta.. hvað er þetta sem heldur okkur þarna?? Eru það allir þessir ómerkilegu statusar eða fáranlegu quizzin, kannski öll þessi applications sem við höfum samþykkt og erum að spila? Talandi um ómerkilega statusa, merkilegt nokk dæmi um það eru til dæmis; Farin að borða. Farin að sofa, góða nótt. Er í skólanum. Er að læra. Er veik/ur í dag. Mér leiðist. Er illt hérna og þarna. Ætlar að elda svona og svona. Er að vinna... blablabla.. Svo ég segi sjálf: Who Gives A F**k! Bara sorrí, en mér er alveg sama þótt þú sért í sálfræðitíma núna eða að fara að sofa.. þitt mál!
Eða þessi quiz.. vá! Nýjasta æðið núna er "Find the Date of the Day" þar sem þér er parað við frægann einstakling.. Eða "Ertu vinsæll eða lúði", "Hversu feit/ur ertu", "Ertu sæt"... Þetta er svo mikið bull! Svo eru sum quizzin alveg skemmtileg, ég viðurkenni það alveg, hef alveg tekið nokkur sjálf en ég mun aldrei leggjast svona lágt.. sorrí og fyrirgefiði þið sem stundið þetta.. mín skoðun..
Jæja nóg um þetta Facebook kvaldur. Ég hef það frekar gott og skítt til skiptis eins og gengur og gerist í mínu daglega lífi. Líka upptekin eins og vanalega, þá sérstaklega í tónlistarskólanum.. fjúkkedí.. Enda nota ég alltaf fimmtudaganna og legg mig í 2-3 klukktíma, þar sem ég er á spani þrjá fyrstu daga vikunnar. Haha, kreisí
Svo er það afmælið mitt.. 11 dagar í það. Við Aníta ætlum að slá saman og fara með sameiginlegann hóp á skauta og í Lasertag. Það verður vonandi fjör.

Ég ætla að gera tilraun hérna. Sjá hversu mikið þetta er lesið, nöldrið mitt. Ef ykkur líkar þar sem ég skrifa þá vil ég biðja ykkur góðfúslega að segja mér hvað ykkur finnst. Er það ekki sanngjarnt?

Þar til næst...

Guđbjörg Guđmundsdóttir
Engin athugasemd